Vectura aðstoðar fyrirtæki að skipuleggja og hagræða í flutningum á vörum til og frá landinu.
Við veitum fyrirtækjum óháða og faglega ráðgjöf þar sem leitast er við að finna hagkvæmustu lausnin í góðri samvinnu við flutningsaðila. Hafðu samband.
Við bjóðum inn- og útflytjendum uppá óháða ráðgjöf við val á flutningsleið til og frá landinu. Hvort sem að þú ert að feta þín fyrstu skref í rekstri fyrirtækis, eða ert búin(n) að vera í flutningum til og frá landinu í mörg ár getum við aðstoðað. Hafðu samband. Öllum fyrirspurnum er svarað.
Með auknu framboði á flutningstengdri þjónustu veitist mörgum erfitt að finna hagkvæmustu lausnina í flutningum. Þegar reynt er að taka tillit til sem flestra þátta er hafa áhrif á heildarkostnað við flutninga og birgðahald aðstoðum við þig við að ganga frá samningum við flutningsaðila til að tryggja að þeirra hagsmunum sé gætt.
Framkvæmdastjóri og stofnandi félagsins er Þórður Björn Pálsson, viðskiptafræðingur sem hefur starfað á íslenska flutningamarkaðinum frá 1997. Þórður var framkvæmdastjóri flutningsmiðlunarinnar Fraktlausnir frá stofnun til 2002 og verkefnisstjóri flugfraktþjónustu Eimskips 2002 - 2004.